Jafnvægisverð á greiðslumarki mjólkur 240 kr/l.

Matvælastofnun bárust 76 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur þann 1. september 2016, sem nú er lokið. Þetta kemur fram á heimasíðu Matvælastofnunar. Markaðurinn að þessu sinni var með þeim stærstu frá upphafi markaðar fyrir greiðslumark mjólkur. Kveðið er á tilboðsmarkað með greiðslumark mjólkur í reglugerð um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum nr. 190/2011 með síðari breytingum. Aðeins var hægt að bjóða til sölu ónotað greiðslumark mjólkur á tilboðsmarkaðnum að þessu sinni.

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. september 2016 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 240 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. Þetta er 30 króna hækkun á jafnvægisverði, eða 14,3%, frá síðasta tilboðsmarkaði sem haldinn var 1. apríl sl. en þá var jafnvægisverðið 210 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 38 (samanborið við 13 á markaði 1. apríl 2016).
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 38 (samanborið við 15 á markaði 1. apríl 2016).
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.877.244 lítrar (samanborið við 804.676 lítrar á markaði 1. apríl 2016).
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 2.452.800 lítrar (samanborið við 1.485.000 lítrar sem óskað var eftir á markaði 1. apríl 2016).
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.624.408 lítrar að andvirði 389.857.920 kr. (samanborið við 724.676 lítrar á markaði 1. apríl 2016).
  • Kauphlutfall viðskipta er 90,58% (á markaði 1. apríl 2016 var kauphlutfallið 92,91%).
  • Línuritið sýnir niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. september 2016. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar.
  • Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 240 kr./l. eins og áður segir.
Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línanna reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði né jafnvægismagni.


Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði 240,- kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. Matvælastofnun, búnaðarmálaskrifstofa, mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast á Bændatorginu.

Heimild: Matvælastofnun (MAST)