Launamiðaútgáfa dkBúbótar komin út

Á vef Bændasamtaka Íslands má sjá frétt varðandi nýja árlega uppfærslu af dkBúbót sem hefur verið send út til notenda. Útgáfan gerir notendum kleift að senda inn launamiða vegna ársins 2015. Ferðaþjónustuaðilar þurfa að kynna sér vel breytingar sem voru gerðar á reglum um virðisaukaskattskyldu og kynna sér hvort þeir þurfi að breyta hjá sér einhverju í bókhaldinu.

Hægt er að finna vefslóðir þar sem breytingarnar eru kynntar í pósti sem var sendur með uppfærslunni og eru notendur hvattir til að kynna sér málin vel og leita aðstoðar fagfólks gerist þess þörf. Uppfærsla á dkBúbót vegna skattframtals 2016 vegna ársins 2015 er svo væntanleg síðar.

jle/okg