Munið kvöldfundinn 12. febrúar á Kirkjubæjarklaustri, um ársuppgjör og framtalsgerð í dk-búbót

Fimmtudaginn 12. febrúar og föstudaginn 13. febrúar verða námskeið í dk-búbót á Icelandair hótelinu á Kirkjubæjarklaustri. Ágætis þátttaka er á námskeiðunum. 

Þá verður haldinn stuttur kvöldfundur á sama stað, fimmtudagskvöldið 12. febrúar kl. 20.00 þar sem helstu breytingar verða ræddar og farið yfir ársuppgjör og framtalsgerð. Fundurinn er öllum opinn sem áhuga hafa.

Skráningarfrestur á námskeiðin var til 9. febrúar. Nánari upplýsingar um námskeiðin og kvöldfundinn veitir Jóhanna Lind, rekstrarráðunautur RMLí gegnum netfangið jle@rml.is eða í síma 516-5028.

jle/okg