Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum október

Snáði frá Hnjúki í Vatnsdal, undan Búkka 17031 frá Lundi í Lundarreykjadal og Skrautu 450. - Mynd fr…
Snáði frá Hnjúki í Vatnsdal, undan Búkka 17031 frá Lundi í Lundarreykjadal og Skrautu 450. - Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuði, við lok október, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar komið var fram undir hádegi þann 13. nóvember.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 461 búi en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 126 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.759,5 árskúa á búunum 461 reiknaðist 6.420 kg. eða 6.505 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á því 12 mánaða tímabili sem uppgjörið nær yfir. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 53,7.

Mest meðalnyt árskúa á uppgjörstímabilinu, síðustu 12 mánuðum var á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, 8.972 kg. Annað í röðinni var bú Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi, þar sem meðalnytin reiknaðist að þessu sinni 8.695 kg. eftir árskú. Þriðja að þessu sinni var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.673 kg. á uppgjörstímabilinu. Þessi þrjú bú röðuðust eins fyrir mánuði síðan. Fjórða í röðinni við lok október var bú Hrepphóla ehf. í Hrepphólum í Hrunamannahreppi þar sem meðalnyt árskúnna reyndist vera 8.347 kg. Fimmta var bú Guðrúnar og Óskars á Tannstaðabakka við Hrútafjörð en þar var meðalnyt árskúa 8.340 kg. Búin í fjórða og fimmta sæti eru þau sömu og við lok september, en þau hafa skipt um sæti síðan þá.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Droplaug 875 (f. Dropi 10077) í Dalbæ í Flóa sem mjólkaði 14.863 kg. Önnur í röðinni að þessu sinni var Skritla 963 (f. Sólon 10069) í Nesi í Höfðahverfi en nyt hennar var 14.654 kg. á fyrrnefndu tímabili. Þriðja var Kera 720 (f. Úranus 10081) á Grund í Svarfaðardal sem mjólkaði 14.216 kg. síðustu 12 mánuði. Í fjórða sæti var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 14.037 kg. á tímabilinu. Fimmta varð kýr nr. 862 (f. Plútó 14074) í Nesi í Höfðahverfi, sem mjólkaði 13.864 kg. á umræddu tímabili. Nú gerðist það, sem ekki hefur gerst oft, a.m.k. að undanförnu, að tvær af fimm efstu kúnum koma frá sama búinu.

Alls náðu 196 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir október hafði verið skilað frá undir hádegi þann 13. nóvember að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuðina. Af þeim hópi mjólkuðu 55 yfir 12.000 kg. og 16 þeirra fóru yfir 13.000 kg. nyt síðustu 12 mánuði. Eins og sjá má á því sem þegar hefur komið fram, mjólkuðu síðan fjórar af fyrrnefndum 16 kúm meira en 14.000 kg. á fyrrnefndu tímabili.

Meðalfjöldi kúa á þeim 125 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 27,9 við lok október en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 24,4. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum reyndist 7.197,5 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.831 ungnauts á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, undanfarna 12 mánuði, var 255,6 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 745,3 dagar.

Athugið að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði eins og bent hefur verið á áður.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023