Breyting á verðskrá fyrir dóma á kynbótahrossum

Atvinnuvega og Nýsköpunarráðuneytið hefur með bréfi frá 10. apríl síðastliðnum samþykkt endurskoðaða verðskrá fyrir dóma á kynbótahrossum. Sýningargjöld verða fyrir fullan dóm 24.600 kr/mvsk og að auki er innheimt worldfengs gjald og er því heildarverð  26.000 kr. Fyrir sköpulags/reiðdóm er verðið  19.100kr/m.vsk en heildarverð með worldfeng gjaldi 20.500kr. Verðskráin tekur þegar gildi.

klk/okg