Frá Bændasamtökum Íslands

Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni.

Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.

Fagráð tekur ákvarðanir um styrkveitingar í desember 2023. Nánari upplýsingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins (elsa@rml.is). Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. desember 2023. Umsóknareyðublað má finna á www.bondi.is og prentuðum eintökum má skila á heimilisfang Ráðgjafarmiðstöðvarinnar hér að neðan.

Berist til:
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
Höfðabakka 9 - 4.hæð, 110 Reykjavík
eða á netfangið elsa@rml.is

/okg