Fréttir af vorsýningum

Skráning á sýningarnar á Selfossi og Hólum vikuna 19. til 23. júní hefur verið framlengdur til miðnættis á sunnudag 4. júní.

Kynbótasýningar sem vera áttu í Víðidal vikuna 5. til 9. júní og í Spretti vikuna 12. til 16. júní falla niður. Ástæðan er lítil skráning. Haft verður samband við þá sem eiga skráð hross á þessum sýningum og þeim boðið að færa hrossin á sýninguna á Selfossi eða að fá að fullu endurgreitt.

Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 516-5000 eða senda tölvupóst á netfangið halla@rml.is.

/okg