Hollaröðun kynbótahrossa Hólar seinni vika

Kynbótasýning verður á Hólum í Hjaltadal dagana 11. til 15. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 08:00 mánudaginn 11. júní.  Alls eru 132 hross skráð á sýninguna.  Yfirlitssýning hefst föstudaginn 15. júní kl. 08:00 á elstu hryssum.

Búið er að birta hollaröð fyrir sýninguna hér á vefnum, sjá tengil hér neðar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:

Röðun hrossa á kynbótasýningum 

-/agg