Hrossaræktarfundir næstu daga

Næstu daga munu Elsa Albertsdóttur ræktunarleiðtogi íslenska hestsins hjá RML og Nanna Jónsdóttir formaður fagráðs í hrossarækt og deildar hrossabænda Bændasamtaka Íslands fara í fundarferð um landið.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir: 

  • Höfn, Stekkhóll – fimmtudaginn 27. apríl kl. 20:00.
  • Egilsstaðir, Stekkhólmur – föstudaginn 28. apríl kl. 20:00.
  • Akureyri, reiðhöllin – laugardaginn 29. apríl kl. 12:00, boðið verður upp á súpu.
  • Sauðárkrókur, Kaffi Krókur– sunnudaginn 30. apríl kl. 12:00, boðið verður upp á súpu.
  • Vestur-Húnavatnssýsla, Dæli – sunnudaginn 30. apríl kl. 20:00.
  • Borgarnes, Vindás – miðvikudaginn 3. maí kl. 20:00.
  • Hella, Gaddstaðaflatir reiðhöll – fimmtudaginn 4. maí kl. 20:00.

Farið verður yfir þau mál er við koma hrossaræktinni. Hestamenn og hrossaræktendur eru hvattir til að fjölmenna á fundina.

Allir velkomnir og tekið verður við skráningum í deildina á fundinum.

/okg