Kynbótasýning á Gaddstaðaflötum við Hellu - Röð hrossa

Kynbótasýning verður á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 20 til 24. ágúst. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 20. ágúst. Yfirlitssýning verður síðan á föstudeginum 24. ágúst. Alls eru 141 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér á forsíðu heimasíðunnar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:

Röðun hrossa á kynbótasýningum

hes/okg