Kynbótasýning í Spretti í Kópavogi fellur niður

Kynbótasýning sem vera átti í næstu viku í Spretti í Kópavogi fellur niður vegna dræmrar þátttöku. Aðeins 7 hross voru skráð á sýninguna. Haft verður samband við þá sem eiga skráð hross á þessari sýningu og þeim boðið að færa hrossin á aðra sýningar eða fá að fullu endurgreitt.

Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 516-5000 eða senda t-póst á netfangið halla@rml.is.

/okg