Lokaskráningardagur á allar vorsýningar er 26. maí

Þegar þetta er ritað eru tvær sýningar fullbókaðar en það eru sýningarnar í Spretti og á Gaddstaðaflötum dagana 12. til 16. júní.

Lokaskráningardagur á allar sýningar vorsins sem eftir eru er föstudagurinn 26. maí. Sýningar verða á þremur stöðum dagana 6. til 9. júní, í Borgarnesi, Víðidal og á Gaddstaðaflötum, enn eru laus pláss á öllum þessum sýningum. Sýningin á Hjólum í Hjaltadal verður vikuna 12. til 16. júní, lokaskráningardagur á hana er 26. maí eins og þegar hefur komið fram.

Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Rétt er að árétta að einungis er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu. Ef korti er hafnað færist skráningin í „eldri pöntun“ en hrossið skráist ekki inn á sýninguna. Endilega takið samt niður pöntunarnúmerið því færslan er geymd í „eldri pöntun“. Þannig að þegar skráning er endurtekin nægir að fara í „eldri pöntun“ og skrá inn pöntunarnúmerið og þá opnast greiðsluglugginn og einungis þarf að skrá inn upplýsingar um greiðslukort. Þegar greiðsla hefur tekist á að koma kvittun í tölvupósti, ef kvittunin kemur ekki hefur skráning trúlega ekki tekist. Þeir sem hafa aðgang að WF geta með því að fara inn í „sýningar“ séð hvort hrossið er komið inn á sýninguna. Ef hrossið birtist þar hefur allt gengið upp og hrossinu verður úthlutað tíma. Röðun hrossa verður birt hér á heimasíðunni þegar hún er tilbúin.

Síðasti skráningar- og greiðsludagur er föstudagurinn 26. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 24.500 kr. en fyrir sköpulags- eða hæfileikadóm 19.000 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst, í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 11.000 kr. fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí nk.

Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir "Kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. má finna leiðbeiningar um hvernig á að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hross@rml.is.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir stóðhesta fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Ekki er hægt að skrá hryssur og geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.

Sjá nánar:

Skrá á kynbótasýningu

Almennt um kynbótasýningar

hes/okg