Lokaskráningardagur á síðsumarssýningar er 9. ágúst

Minnum á að boðið verður upp á þrjár kynbótasýningar vikuna 19. til 23. ágúst, opnað var á skráningar 15. júlí. Sýningarnar verða að þessu sinni á Selfossi, í Borgarnesi og á Akureyri. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á miðnætti föstudaginn 9. ágúst.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér í gegnum heimasíðuna.  

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á vefnum nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sjá nánar
Upplýsingar varðandi kynbótasýningar
Skrá á kynbótasýningu

hes/okg