Málefni hrossaræktar og hestamanna - Fundarferð um landið

Almennir fundir um málefni hrossræktarinnar og félagsstarfsins verða haldnir um landið þegar Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Elsa Albertsdóttir ræktunarleiðtogi íslenska hestsins hjá RML verða á ferðinni.

Helstu málefni sem tekin verða fyrir eru:

  • Breytingar á félagskerfi Félags hrossabænda
  • Markaðsmál
  • Sýningarárið 2021 – helstu niðurstöður

Fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum kl. 20:00:

  • Mánudagurinn 11. október – Borgarfjörður í Vindási félagsheimili Hestamannafélagsins Borgfirðings.
  • Þriðjudagurinn 12. október - Húnaþing á Stóru-Ásgeirsá (Mjólkurhúsið).
  • Miðvikudagurinn 13. október – Hliðskjálf á Selfossi.
  • Mánudagurinn 18. október – Eyjafjörður í Reiðhöllini á Akureyri.
  • Þriðjudagurinn 19. október – Skagafjörður í Tjarnarbæ.

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

/okg