Miðsumarssýning á Hólum í Hjaltadal dagana 24.júlí – 26.júlí

Röðun fyrir miðsumarssýningu sem verður haldin á Hólum er klár. Hefjast dómar stundvíslega kl. 08:00 miðvikudaginn 24.júlí og yfirlitssýning fer fram föstudaginn 26.júlí.
Alls eru 61 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar.
Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms svo að dómstörf gengi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Hollaröðun hrossa

Hollaröðun knapa

 

SEM/GHÁ