Miðsumarssýning Gaddstaðaflötum 29. júlí - 1. ágúst Hollaröð

Röðun fyrir þriðju og síðustu viku miðsumarssýningar sem verður á Gaddstaðaflötum er tilbúin. Dómar hefjast stundvíslega kl. 08:00 mánudaginn 29. júlí og yfirlitssýning fer fram fimmtudaginn 1. ágúst.
Alls eru 96 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar eða tengil á forsíðunni Röðun hrossa.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms svo að dómstörf gengi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röðun hrossa

Sigurlína/Helga