Opnað fyrir skráningar á miðsumarssýningar

Búið er að opna fyrir skráningar á miðsumarssýningar. Sýningarnar verða tvær að þessu sinni ef næg þátttaka næst, á Selfossi dagana 23. júlí - 3. ágúst og á Akureyri dagana 30. júlí - 3. ágúst. Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á miðnætti föstudaginn 13. júlí á Selfossi en föstudaginn 20. júlí á Akureyri.

Gert er ráð fyrir tveggja vikna sýningu á Selfossi en ef fækka þarf dögum verða felldir niður dagar framan af sýningunni. Ef þátttaka verður það lítil að ein vika dugi verður fyrri vikunni sleppt.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hér í gegnum heimasíðu RML en á forsíðunni er tengill; „skrá á kynbótasýningu“. Einnig má finna hér á síðunni leiðbeiningar um hvernig skrá skuli á kynbótasýningu. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn.

Verð fyrir fullnaðardóm er 26.000 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 20.500 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð Rétt er að árétta að einungis er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu. Þegar greiðsla hefur tekist á að koma kvittun í tölvupósti, ef kvittunin kemur ekki hefur skráning trúlega ekki tekist. Þeir sem hafa aðgang að WF geta með því að fara inn í „sýningar“ séð hvort hrossið er komið inn á sýninguna. Ef hrossið birtist þar hefur allt gengið upp og hrossinu verður úthlutað tíma. Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á heimasíðunni þegar þær eru frágengnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 20. ágúst. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
• Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann, þar sem örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hrossum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni eða með því að hringja í síma 516-5000 sem er skiptiborð RML.  Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin sigurlina@rml.is eða hross@rml.is.

hes/okg

Sjá nánar

Skrá hross á kynbótasýningu 
Upplýsingar um kynbótasýningar
Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningar