Örmerkinganámskeið í janúar 2023

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins áformar að halda örmerkinganámskeið í janúar 2023. Að námskeiði loknu geta þátttakendur sótt um leyfi til örmerkinga hrossa hjá Matvælastofnun, á grundvelli laga um velferð dýra. Námskeiðin verða haldin á þremur stöðum, verði þátttaka næg:

  • Hvolsvöllur, miðvikudagur 4. janúar.
  • Blönduós, fimmtudagur 12. janúar.
  • Hvanneyri, fimmtudagur 19. janúar.

Um er að ræða eins dags námskeið, bæði bóklegt og verklegt, frá kl. 09:00 til 16:00. Námskeiðsgjald er kr. 50.000,- með einni örmerkingablokk innifalinni í verði. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig til þátttöku hjá Pétri Halldórssyni fyrir föstudaginn 30. desember næstkomandi. Netfang: petur@rml.is / S: 862-9322 eða 516-5038.

/okg