Örmerkingar - munið að skila inn fyrir 1. mars

Rétt er að minna á að fyrir 10 mánaða aldur eiga öll folöld að vera grunnskráð og einstaklingsmerkt. Þeir sem enn eiga ómerkt folöld ættu að huga að því að láta merkja þau við fyrsta tækifæri. Ekki er innheimt gjald fyrir grunnskráningu á folöldum til 1. mars en eftir þann tíma kostar grunnskráningin 2.500 kr. Pappírar varðandi einstaklingsmerkingar á folöldum þurfa því að berast fyrir 1. mars nk. á skrifstofur RML. Merkingaraðilar ættu því að kanna hvort enn leynast blöð í örmerkjabókunum sem eftir er að skila inn til skráningar.

Þess má geta að þegar þetta er ritað er búið að grunnskrá 4.183 folöld (lifandi 4.006) sem eru heldur fleiri fölöld en á sama tíma í fyrra en þá voru þau 3.929 (lifandi 3.854). Skráð trippi fædd árið 2020 eru 5.622 (lifandi 5.409), þannig trúlega eru rúmlega 1.000 folöld ennþá óskráð.

Samtals er búið að skrá 433 folöld á Vesturlandi (svæði 35 til 49), 1.693 á Norðurlandi (svæði 52 til 67), 126 á Austurlandi (svæði 75-77) og 1.696 á Suðurlandi (svæði 25 og 80 til 88). Folöld kennd við ræktunarnöfn (svæði 01) eru 235. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá nánari skiptingu eftir kyni og svæðum. 

Vinsamlegast sendið pappíra varðandi skýrsluhald á skrifstofur okkar á Selfossi eða Akureyri, þar sem skráning fer fram. Heimilisföngin eru:


RML
v/ skýrsluhalds í hrossarækt
Austurvegi 1
800 Selfoss

RML
v/ skýrsluhalds í hrossarækt
Óseyri 2
603 Akureyri

Hægt er að senda fyrirspurnir varðandi skýrsluhaldið á netföngin halla@rml.is eða agg@rml.is.

/okg