Örmerkingar – munið skil fyrir 1. mars

Rétt er að minna á að fyrir 10 mánaða aldur eiga öll folöld að vera grunnskráð og einstaklingsmerkt. Þeir sem enn eiga ómerkt folöld ættu að huga að því að láta merkja þau við fyrsta tækifæri. Þess má geta að þegar þetta er ritað er búið að grunnskrá 4.451 folöld (lifandi 4.322) sem er mjög svipaður fjöldi og var á þessum tíma í fyrra. Skráð trippi fædd árið 2022 eru 6.145 (lifandi 5.810), þannig trúlega eru ríflega 1.000 folöld ennþá óskráð. Alls hafa 3.340 folöld þegar verið örmerkt.

Ef skoðaðar eru skráningar eftir landshlutum þá hafa verið skráð 541 folöld á Vesturlandi (svæði 35 til 49), 1.785 á Norðurlandi (svæði 52 til 67), 141 á Austurlandi (svæði 75-77) og 1.702 á Suðurlandi (svæði 25 og 80 til 88). Folöld kennd við ræktunarnöfn (svæði 01 og 02) eru 282. Í töflu 1 hér fyrir neðan má sjá nánari skiptingu eftir kyni og svæðum.

Í töflu 2 má sjá afdrifaskráningu á þeim folöldum sem hafa verið skráð, þegar þetta er ritað.

Vinsamlegast sendið pappíra varðandi skýrsluhald á skrifstofur okkar á Selfossi eða Akureyri, þar sem skráning fer fram. Heimilisföngin eru:

RML
v/ skýrsluhalds í hrossarækt
Austurvegi 1
800 Selfoss
 
RML
v/ skýrsluhalds í hrossarækt
Óseyri 2
603 Akureyri
Hægt er að senda fyrirspurnir varðandi skýrsluhaldið á netföngin halla@rml.is eða agg@rml.is.
 
/okg