Röðun hrossa á kynbótasýningu á Sörlastöðum 22. til 26. maí.

Kynbótasýning verður á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagana 22. til 26. maí. Dómar hefjast stundvíslega kl. 12:30 mánudaginn 22. maí. Yfirlitssýning verður föstudaginn 26. maí. Alls eru 74 hross skráð á sýninguna. 

Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" á forsíðu heimasíðunnar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röðun hrossa 

hes/okg