Röðun hrossa á kynbótasýningu á Selfossi 1. til 2. júní

Kynbótasýning verður á Selfossi dagana 1. og 2. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 fimmtudaginn 1. júní. Yfirlitssýning verður föstudaginn 2. júní og hefst hún kl. 9:00. Alls eru 32 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" eða í gegnum tengil hér neðar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röðun hrossa á kynbótasýningum

hes/okg