Röðun hrossa á sýningum vikuna 6. til 10.júní

Hollaröð fyrir kynbótasýningar vikuna 6. til 10. júní hefur verið birt hér á síðunni. Sýningarnar hefjast sem hér segir:

  • Mánudaginn 6. júní á Gaddstaðaflötum og Sörlastöðum, stundvíslega kl. 8:00. Yfirlitssýning verður föstudaginn 10. júní.
  • Þriðjudaginn 7. júní á Hólum í Hjaltadal, stundvíslega kl. 9:00. Yfirlitssýning verður á fimmtudeginum 9. júní.
  • Þriðjudaginn 7. júní í Spretti, stundvíslega kl. 8:00. Yfirlitssýning verður á fimmtudeginum 9. júní.

Við viljum biðja knapa að mæta tímanlega svo hægt verið að halda tímasetningar sem best.

Sjá nánar:
Röðun hrossa

/sem