Síðsumarssýning kynbótahrossa í Borgarnesi 21. -22. ágúst

Þrátt fyrir dræma þátttöku hefur verið ákveðið að halda síðsumarssýningu í Borgarnesi enda sýningin á Selfossi full og því ekki hægt að færa þessi hross á aðra sýningu. Alls eru 22 hross skráð til leiks og hefjast dómar stundvíslega kl. 10:30 miðvikudaginn 21.ágúst. Yfirlitssýning fer svo fram fimmtudaginn 22.ágúst.
Hrossunum er skipt niður í þrjú holl og búið er að birta röðun hrossa hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella tengil hér neðar. Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms svo að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Hollaröð

Sigurlína/Helga