Síðsumarssýningar - Hafnafjörður 16.-17. ágúst, Hella 16.-20. ágúst

Síðsumarssýningar í Hafnarfirði og á Gaddstaðaflötum

Ákveðið hefur verið að sýning verði í Hafnarfirði mánudaginn 16. ágúst þrátt fyrir fáar skráningar. Í ljósi aðstæðana þótti ekki fýsilegt að vera með yfirfulla sýningu á Gaddstaðaflötum en svo hefði orðið ef báðum sýningunum hér sunnan heiða hefði verið steypt saman.

Fyrirkomulagið verður þannig að dæmt verður í Hafnarfirði mánudaginn 16. ágúst og yfirlitssýning á þriðjudeginum 17. ágúst. Hollaröðun verður birt í síðasta lagi næstkomandi  fimmtudag.

Á Gaddstaðaflötum verður fyrirkomulagið hefðbundið, dómar 16. til 19. ágúst og yfirlitssýning föstudaginn 20. ágúst. Hollaröðun verður birt næstkomandi fimmtudag.

Við biðjum knapa og eigendur að virða sóttvarnarreglur og gæta vel að persónulegum sóttvörnum. 

hes/agg