Síðsumarssýningar - Síðasti skráningardagur 5. ágúst.

Síðasti skráningardagur á síðsumarssumarssýningar er næstkomandi föstudagur 5. ágúst. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá hvaða sýningar eru í boði. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML www.rml.is en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. Nánari leiðbeiningar varðandi skráningar er að finna hér á heimasíðunni.

RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum eða sameina sýningar ef skráningar eru færri en búist er við. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross

Sýningargjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 31.350 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 24.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 18.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 14.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun á læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni eða með því að hringja í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Sjá nánar: 
Skrá á kynbótasýningu
Upplýsingar um kynbótasýningar

/okg