Nú þegar líður að áramótum og allir búnir að skila haustskýrslum til Matvælaráðuneytisins er gott að huga að hvað sé ógert varðandi skýrsluhaldið í heimarétt WF. Eftirfarandi er gott að skoða:
- Er búið að ganga fangskráningum þessa árs? Muna einnig að taka fram hvaða hryssum var ekki haldið í sumar.
- Er búið að skrá inn hvaða folar voru geltir í sumar?
- Hafa afdrif verið skráð?
- Eru folöld þessa árs skráð?
- Hafa örmerkingar og DNA-greiningar skilað sér inn?
- Eru litaskráningar réttar?
Þegar þetta er ritað er búið að skrá 3.579 folöld, þar af á lífi 3.416 og eru 2.412 þeirra þegar örmerkt. Í árgangi 2023 eru 5.703 trippi á lífi og 5.535 þeirra eru örmerkt. Ef árgangar 2023 og 2024 eru svipað stórir þá gæti verið eftir að skrá rúmlega 2.000 folöld. Tekið er á móti skýrsluhaldspappírum á öllum starfsstöðvum RML. Skráning fer að mestu fram á starfsstöðvunum á Akureyri og á Selfossi og því æskilegt að þeir sem senda pappíra með pósti sendi á heimilisföngin:
RML, Óseyri 2, 603 Akureyri
eða
RML, Austurvegi 1, 800 Selfoss
Ef eitthvað er óljóst varðandi skýrsluhaldið er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin agg@rml.is eða halla@rml.is.
/okg