Sýning kynbótahrossa - Alþjóðlegt námskeið á vegum FEIF

Alþjóðlegt námskeið á vegum FEIF fyrir þjálfara og sýnendur kynbótahrossa verður haldið að Skeiðvöllum í Landssveit dagana 4. til 7. apríl í vor. Námskeiðið er ætlað fólki á aldrinum 18-30 ára sem hefur reynslu af þjálfun og/eða sýningu kynbótahrossa og hefur áhuga á frekari menntun og þjálfun á því sviði. Markmiðið er einnig að gefa ungum sýnendum kost á að skiptast á skoðunum og fræðast af samherjum á líkum aldri. Hámarksfjöldi þátttakenda eru þrír aðilar frá hverju FEIF landi. 

Á námskeiðinu verður farið bóklega og verklega yfir sýningu kynbótahrossa. Fyrirlesarar verða kynbótadómarar, ræktendur og þjálfarar auk sýnenda í fremstu röð.

Heildarnámskeiðsgjald er 385 evrur sem inniheldur kennslugögn, gistingu og fæði á Skeiðvöllum. Á Íslandi tekur við umsóknum fyrir hönd FEIF, Þorvaldur Kristjánsson, netfang thk@rml.is en einnig er hægt að hafa samband við hann fyrir nánari upplýsingar. Vegna skipulagningar námskeiðsins þurfa umsóknir um þátttöku að berast fyrir 27. febrúar næstkomandi. 

þk/okg