Tvær miðsumarssýningar falla niður - ónóg þátttaka

Vegna ónógrar þátttöku þá falla tvær miðsumarssýningar niður. Það er sýning sem vera átti á Fljótsdalshéraði 15.-16. júlí og sýning I á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 12.-16. júlí.
Bætt hefur verið við degi á Hellusýningu III á Gaddstaðaflötum og bætist þar við sunnudagurinn 25. júlí.
Hollaröðun fyrir sýningu II á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 19.-23. júlí kemur inn á heimasíðuna í byrjun næstu viku.

 

/hh