Umsóknir í Stofnverndarsjóð

Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni. 

Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar. 

Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2020. Nánari upplýsingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins (elsa@rml.is). Frestur til að skila inn umsóknum er til 5. desember 2021 og skal umsóknum skilað til: 

Fagráð í hrossarækt
Bændahöllinni v/Hagatorg
107 Reykjavík.

/okg