Vorsýningar kynbótahrossa - síðasti skráningardagur er í dag

Lokað verður fyrir skráningar á allar sýningar vorsins á miðnætti í kvöld. Skráning og greiðsla fer fram hér í gegnum heimasíðu okkar. Einnig er að finna hér á síðunni leiðbeiningar um skráningarkerfið ásamt ýmsu öðru er við kemur hrossarækt, m.a. Vegvísi við kynbótadóma 2022.

Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Í töflunni hér að neðan má sjá á hvaða sýningum eru enn laus pláss þegar þetta er ritað.

Verð fyrir fullnaðardóm er 31.350 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 24.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.

Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm. Röðun hrossa til dóms á sýningunum verður birt á heimasíðu RML nokkrum dögum fyrir sýningu.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 18.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 14.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Nánari upplýsingar hér í gegnum tengla að neðan, einnig er hægt að hringja í síma 516-5000 eða senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Sjá nánar: 
Upplýsingar um kynbótasýningar
Skrá á kynbótasýningu

/okg