Yfirlit á Hólum 19. ágúst

Yfirlitssýning síðsumarssýningar á Hólum í Hjaltadal fer fram á morgun fimmtudaginn 19.ágúst og hefst stundvíslega kl. 08:30 á flokki 7 vetra og eldri hryssna.

Alls mættu 90 hross til dóms og eru 79 hross sem mæta á yfirlitssýningu og skiptast í 29 holl. Áætlað er að yfirlitssýningu ljúki um kl. 15:30.

Sjá nánar: 
Hollaröð á yfirliti 19. ágúst

/okg