Yfirlitssýning á Selfossi 25. ágúst

Yfirlitssýning kynbótahrossa á Brávöllum á Selfossi verður föstudaginn 25. ágúst og hefst kl. 9.00 með sýningu 7 vetra og eldri hryssna sem sýndar verða í 11 hollum. Að lokinni sýningu þeirra verða sýndar 6 vetra hryssur og að lokinni sýningu 5 holla eða samtals 16 verður tekið klukkutíma hádegishlé. Að hádegishléi afstöðnu verður sýning 6 vetra hryssna kláruð og næstar í röð verða svo 5 vetra hryssur og þá 4 vetra.

Að lokinni sýningu hryssna verða sýndir stóðhestar þar sem byrjað verður á 5 vetra og endað á 7 vetra og eldri.

Sjá nánar:
Hollaröð á yfirlitssýningu á Selfossi 25. ágúst