Bændaferð til Noregs 7.-11. nóvember

Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins og NLR (Norsk Landbruksrådgiving) sem er ráðunautaþjónusta í eigu norskra bænda, standa fyrir bændaferð til Noregs dagana 7.-11. nóvember næstkomandi. Farið verður í heimsóknir til bænda, hlustað á fyrirlestra frá NLR um norskan landbúnað og að lokum farið á landbúnaðarsýningu.

Dagskrá:
Dagur 1: Miðvikudagur 7.11.2018

  • Flug frá Akureyri 04:30 lent í Keflavík 5:20 (fyrir Norðlendinga)
  • Flug frá Keflavík 7:50 lent í á Gardemoen 11:30
  • Rúta á vegum NLR sækir okkur á flugvöllinn 12:15
  • 12:15 – 17:00 Matur og heimsókn á bæi (byrjum líklega á kornbændum til að minnka smithættu)

Dagur 2: Fimmtudagur 8.11.2018

  • 9:00 – 11:30 fyrirlestrar frá NLR um norskan landbúnað, félagsbú (samdrift) og tæknivæðingu.
  • 11:30 – 12:30 Hádegismatur
  • 12:30 – 17:00 Heimsóknir á bæi - mjólkurframleiðsla

Dagur 3: Föstudagur 9.11.2018

  • 9:00 – 12:00 Heimsóknir á bæi
  • 12:00 – 13:00 Hádegismatur
  • 13:00 – 17:00 Heimsóknir á bæi meðal annars verður skoðuð heimavinnsla

Dagur 4: Laugardagurinn 10.11.2018

  • Thon Hotel Panorama í miðbæ Osló
  • Lestarferð upp til Lillestrom (c.a. 12mín í lest)
  • 9:00 – 18:00 Landbúnaðarsýningin Agrotekknik 2018

Dagur 5: Sunnudagur 11.11.2018

  • Flug frá Gardemoen 13:00 lent í Keflavík 15:05
  • Flug frá Keflavík 17:15 lent á Akureyri 18:05 (fyrir Norðlendinga)

Verð: (með fyrirvara)

  Einstaklingsherbergi Tveggja manna herbergi
Frá Akureyri 265.000.- 245.000.-
Frá Keflavík 235.000.- 215.000.-

 

Með fyrirvara um lágmarksfjölda.

Þeir sem vilja sleppa landbúnaðarsýningunni hafi samband til að fá verð.

Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Sigtrygg Veigar í síma 516 5065 eða í gegnum netfangið sigtryggur@rml.is.

Sjá nánar:
Heimasíða Agroteknikk 2018
Heimasíða Norsk Landbruksrådgiving

svh/okg