Hádegisfundir RML um áburðarmál hefjast 22. nóvember.

Haldnir verða fræðslu- og umræðufundir um áburðarmál víðs vegar um landið á næstu dögum.  

Á fundunum verður rætt um efnasamsetningu tegunda af tilbúnum áburði, helstu næringarefni í áburði og áhrif þeirra á magn og gæði uppskeru. Rætt um búfjáráburð og þætti sem hafa áhrif á nýtingu hans og aðra lífræna áburðargjafa eða jarðvegsbætandi efni. Rætt verður um þætti tengda jarðvegi og fleiru sem hafa áhrif á nýtingu áburðar s.s. vatnsbúskap og sýrustig jarðvegs. Farið verður yfir niðurstöður heyefnagreininga og hvernig nýta megi þær við val á áburði. Áburðarsalar ætla að mæta eftir því sem þeir hafa færi á og taka þátt í umræðum.

Fundirnir hefjast allir kl. 11:30 nema fundurinn í Þistilfirði sem hefst kl. 17 og fundurinn á Breiðumýri sem hefst kl 10:30. Súpa og brauð verður í boði RML. 

Fundirnir verða haldnir sem hér segir ef næg þátttaka fæst:  

  • Þri 22. nóv: Akureyri, Hótel Kea (Stuðlaberg)
  • Þri 22. nóv: V-Hún, Hótel Laugarbakki
  • Þri 22. nóv: Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf (Þingmúli)
  • Mið 23. nóv: S-Þing, Breiðamýri
  • Mið 23. nóv: Hvanneyri, LbhÍ (Ársalur)
  • Mið 23. nóv: A-Skaft, Hótel Smyrlabjörg
  • Mið 23. nóv: Þistilfjörður, Svalbarðsskóli
  • Fim 24. nóv: Selfoss, Hótel Selfoss (Norðursalur)
  • Þri 29. nóv: Skagafjörður, Langamýri
  • Þri 29. nóv: Kirkjubæjarklaustur, Hótel Klaustur

Tekið er við skráningum hér í gegnum heimasíðuna, einnig er hægt að hringja í 516 5000. 

Sjá nánar: 
Skráning á hádegisfund

/okg