Spildudagur LbhÍ og RML á Hvanneyri á föstudaginn

Landbúnaðarháskólinn og RML efna til „Spildudags“ á Hvanneyri föstudaginn 19. ágúst. Gengið verður að tilraunareitum með höfrum, byggi, vornepju og eftirsóttum fjölærum grastegundum. Mæting er við Ásgarð, aðalbyggingu LbhÍ á Hvanneyri klukkan 13:00.

Þar á eftir verður Jarðræktarmiðstöð LbhÍ heimsótt þar sem sérfræðingar LbhÍ og RML munu kynna ýmiss jarðræktartengd verkefni frá klukkan 14:00. Auk þess verða tæki og tól Jarðræktarmiðstöðvarinnar til sýnis.

Kaffi og með því í boði.

Sjá nánar: 
Spildudagur - viðburður á facebook
Jarðræktarmiðstöð LbhÍ á facebook
Landbúnaðarháskóli Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands á facebook

/okg