Verð og framboð á sáðvöru og grasfræblöndum

Vakin er athygli á að nýir listar yfir verð og framboð á sáðvöru og grasfræblöndum hafa nú verið birtir hér á á heimasíðu RML. Í nýju listunum eru upplýsingar um allt fræ og blöndur sem eru til sölu ásamt verði sem og upplýsingum sem liggja fyrir um viðkomandi yrki í nýjasta Nytjaplöndulista Landbúnaðarháskóla Íslands.

Um leið viljum við minna á skráningarblöð í dráttarvélina en eins og allir bændur þekkja vel er afar mikilvægt að halda vel utan um alla meðferð túna.  

Skráning á áburðargjöf og uppskeru er þar einkum mikilvæg. Með tilkomu skýrsluhaldsforritsins Jörð.is hefur bændum verið auðveldað þetta utanumhald til muna. Þó er það þannig að ef skráning í Jörð.is er ekki gerð jafnóðum, verður að halda utan um skráninguna á pappír.

Til að auðvelda bændum þessa skráningu hefur Sigurður Jarlsson jarðræktarráðunautur tekið saman vinnuskjöl með túnkorti, sem nýtast vel til skráningar í dráttarvélinni.

Meðfylgjandi er sýnishorn af því hvernig skráningarblöðin líta út. Þeir sem óska eftir að fá sambærilegt vinnuskjal fyrir sín tún geta haft samband við Sigurð Jarlsson ráðunaut í síma 516-5042 eða sent honum tölvupóst í gegnum netfangið sj@rml.is.

Sjá nánar: 

Sýnishorn af skráningarblöðum í dráttarvél 

Verð og framboð á sáðvöru og grasfræblöndum

sj/okg