Braut 112 á Tjörn á Skaga hefur rofið 100 tonna múrinn

Braut 112 á Tjörn, f. Stígur 97010.
Braut 112 á Tjörn, f. Stígur 97010.

Afrekskýrin Braut 112 á Tjörn á Skaga hefur rofið 100 tonna múrinn í æviafurðum. Í lok febrúar s.l. hafði hún mjólkað 99.821 kg mjólkur yfir ævina en hún var í 16,1 kg dagsnyt þann 25. febrúar. Það má því ætla að hún hafi mjólkað sínu 100 þús. kg mjólkur þann 12. mars eða þar um bil. Braut 112 er fædd 12. september 2005, dóttir Stígs 97010 og Þúfu 026. Braut bar sínum fyrsta kálfi þann 23 .október 2007 og hefur borið níu sinnum síðan þá, síðast 12. febrúar 2017. Mestum afurðum á einu ári náði Braut árið 2011 þegar hún mjólkaði 10.961 kg en hún hefur fjórum sinnum náð ársafurðum upp á meira en 10 þús. kg, 2010 (10.007 kg), 2011 (10.961 kg), 2012 (10.190 kg) og 2017 (10.699 kg). Mestu mjólkurskeiðsafurðir hennar eru á yfirstandandi mjólkurskeiði sem er orðið æði langt. Hún er nú komin í 19.220 kg frá síðasta burði. Á sínu 5. mjólkurskeiði mjólkaði hún hins vegar 14.630 kg.

Eðlilega hefur tímans tönn sett mark sitt á Braut enda fáar kýr sem bæði ná þessum aldri og afurðum. Það að kýr nái 14. vetra aldri í dag er að verða afar fátítt og hvað þá að þær skili slíkum afurðum. Það verður þó seint sagt annað en að Stígur 97010 hefur skilað fjölmörgum endingargóðum kúm. Braut fer von bráðar á vit feðra sinna en hún glímir nú við erfiða júgurbólgu auk þess sem að hún hefur ekki náð að festa fang. Þrátt fyrir júgurbólgu nú hefur Braut alla tíð verið ákaflega júgurhraust sem best sést á því að af 88 kýrsýnum hefur aðeins 1 mælst yfir 400 þús. í ml. og einungis fimm farið yfir 250 þús. í ml. Hins vegar hafa 52 sýni mælst undir 100 þús. í ml.

Það er full ástæða til að óska ábúendum á Tjörn til hamingju með þessa farsælu og endingargóðu kú sem Braut hefur reynst vera.

/gj