Fagþing nautgriparæktarinnar 2022: Fyrsti fundur á morgun, þriðjudaginn 15. mars

Við minnum á að fagþing nautgriparæktarinnar 2022 verður með breyttu sniði. Að þessu sinni verður um að ræða röð stuttra fræðsluerinda á Teams í nokkrar vikur. Fyrsti fundurinn verður þriðjudaginn 15. mars kl. 12.00. Til umfjöllunar á þeim fundi verður innleiðing nýrra lífsýnamerkja í nautgriparækt. Hlekk inn á fundinn er að finna hér fyrir neðan.

Næsti fundur verður svo mánudaginn 21. mars en þá mun Sigtryggur Veigar Herbertsson fjalla um bútækninýjungar með áherslu á nýtingu tilbúins áburðar og búfjáráburðar.

Sjá nánar:

Innleiðing nýrra lífsýnamerkja í nautgriparækt - fundarhlekkur

Dagskrá fagþings nautgriparæktarinnar 2022