Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt - opið fyrir umsóknir til 31. mars

RML minnir nautgripabændur á að opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við nautgriparækt nr. 1252/2019, VIII. kafla. Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2021-2022 skal skilað inn rafrænt á afurd.is eigi síðar en 31. mars.
Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð nautgripa.

Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 26. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:

1. Nýframkvæmda
2. Endurbóta á eldri byggingum

Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:

1. Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaráætlun með tímasettri verkáætlun.

2. Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
3. Samþykktar teikningar ef við á.
4. Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna. Hver framleiðandi getur þó ekki fengið hærra framlag ár hvert en 10% af árlegri heildarupphæð fjárfestingastuðningsins skv. fjárlögum.
Mögulegt er að fá fjárfestingastuðning vegna sömu framkvæmdar í þrjú ár samfellt og til þess að það gangi eftir verður að skila inn framhaldsumsókn.
RML býður upp á aðstoð við umsóknir og er bændum bent á að hafa samband við skiptiborð í síma 516 5000 eða á vefpóst rml@rml.is

/hh