Fjögur ungnaut úr 2015 árgangi tilbúin til dreifingar

Spaðaás 15037
Spaðaás 15037

Nú eru komnar upplýsingar um fjögur ný óreynd naut úr 2015 árgangi á nautaskra.net. Þetta eru eftirtalin fjögur naut; Spaðaás 15037 frá Syðri-Bægisá í Öxnadal undan Laufási 08003 og Stöku 474 Ófeigsdóttur 02016, Knörr 15038 frá Naustum í Eyrarsveit undan Flekk 08029 og Laufu 329 Koladóttur 06003, Gnýr 15040 frá Gerðum í Flóa undan Sandi 07014 og Gná 547 Laufássdóttur 08003 og Þyrnir 15041 frá Hlöðum í Hörgársveit undan Kletti 08030 og Þrílit 641 Ófeigsdóttur 02016.

Dreifng úr þessum nautum er nýhafin á Vesturlandi en á öðrum svæðum bíða þeir næstu áfyllingar hjá frjótæknum. Að venju eru gefin út spjöld með sambærilegum upplýsingum. Þau eru komin í dreifingu og ættu að berast bændum á allra næstu dögum. Einnig eru þessi spjöld birt á nautaskra.net sem pdf-skjöl til skoðunar og útprentunar ef menn kjósa svo.

/gj