Fyrstu naut úr 2017 árgangi í dreifingu

Flýtir 17016
Flýtir 17016

Dreifing á sæði úr fyrstu átta nautunum úr 2017 árgangi er að hefjast og eru upplýsingar um þau komnar á nautaskra.net. Þetta Balti 17002 frá Eyði-Sandvík í Flóa undan Þyt 09078 og Von 1122 Toppsdóttur 07046, Ormur 17003 frá Egilsstöðum á Völlum undan Keip 07054 og Flicku 1126 Stráksdóttur 10011, Flötur 17005 frá Halllandi á Svalbarðsströnd undan Bolta 09021 og Steinu 934 Bambabóttur 08049, Lord 17008 frá Seljavöllum í Hornafirði undan Bolta 09021 og Díönu 713 Kambsdóttur 06022, Ofnir 17010 frá Halllandi á Svalbarðsströnd undan Gusti 09003 og Sögu 1000 Glæðisdóttur 02001, Hnútur 17011 frá Hvanneyri í Andakíl undan Keip 07054 og Snurðu 1716 Apollódóttur 12042, Kopar 17014 frá Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði undan Bláma 07058 og Búvís 555 Baldadóttur 06010 og Flýtir 17016 frá Efstu-Grund undir Eyjafjöllum undan Gusti 09003 og Rjóð 524 Ferilsdóttur 09070.

Úr öllum þessum nautum er til SpermVital-sæði.

Ungnautaspjöld með hefðbundnum upplýsingum eru komin úr prentun og mun í framhaldinu verða dreift til bænda á hefðbundinn hátt. Þau eru einnig aðgengileg sem pdf-skjöl á nautaskra.net eins og venja er.

/gj