Gangmáladagatal 2021-22

Gangmáladagatal fyrir 2021-22 er komið úr prentun og fer í dreifingu um eða rétt upp úr áramótum. Að venju verður þeim dreift með frjótæknum. Það er því um að gera að minna frjótækninn á hvort hann sé ekki með dagatal við fyrstu sæðingar á nýju ári. Gangmáladagtalið hefur sýnt sig vera eitthvert albesta hjálpartæki við beiðslisgreiningu og sæðingar sem völ er á og nákvæm og markviss notkun þess stuðlar að betri frjósemi en ella.

Dagatalið nær frá 1. janúar 2021 til 24. febrúar 2022 og er gefið út af RML og Kynbótastöð Suðurlands í samstarfi við Lífland.