Jarfi 16016 er besta nautið fætt 2016

F.v. Sveinbjörn Eyjólfsson, Pétur Diðriksson, Karitas Þ. Hreinsdóttir og Herdís Magna Gunnarsdóttir.…
F.v. Sveinbjörn Eyjólfsson, Pétur Diðriksson, Karitas Þ. Hreinsdóttir og Herdís Magna Gunnarsdóttir. Mynd: Guðrún Björg Egilsdóttir.

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2016, var veitt á Búgreinaþingi kúabænda í gær, fimmtudaginn 23. feb. 2023. Besta nautið í árgangi 2016 var valið Jarfi 16016 frá Helgavatni í Þverárhlíð í Borgarfirði. Ræktendur Jarfa 16016 eru Ágústa Ó. Gunnarsdóttir, Karitas Þ. Hreinsdóttir, Pétur og Vilhjálmur Diðrikssynir á Helgavatnsbúinu og tóku þau Karitas og Pétur við viðurkenningunni úr höndum Herdísar Mögnu Gunnarsdóttur, fráfarandi formanns Deildar kúabænda, og Sveinbjörns Eyjólfssonar, forstöðumanns Nautastöðvarinnar.

Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt hjá RML, fór nokkrum orðum um Jarfa 16016 fyrir afhendingu viðurkenningarinnar. Þar kom fram að Jarfi 16016 hlaut eftirfarandi umsögn fyrir dætur:
Dætur Jarfa eru góðar mjólkurkýr þar sem mjólkurmagn og hlutföll verðefna í mjólk liggja um meðallag. Þetta eru fremur smáar kýr og háfættar, bolgrunnar og útlögulitlar með sterka yfirlínu. Malirnar eru grannar, aðeins hallandi og þaklaga. Fótstaða er sterkleg en aðeins þröng. Júgurgerðin er úrvalsgóð, júgurband mjög áberandi, festa mjög mikil og þau frábærlega vel borin. Spenar eru frekar stuttir og grannir en mjög vel settir. Mjaltir eru mjög góðar og mjaltagallar fátíðir. Skap þessara kúa er ákaflega gott og skapgallaðir gripir vandfundnir í hópnum. Jarfi hlýtur nafnbótina besta naut fætt árið 2016.

Fagráð í nautgriparækt, Nautastöðin, Bændasamtökin og RML óska ræktendum Jarfa 16016 til hamingju með viðurkenninguna og þakka fyrir hönd kúabænda fyrir ræktun þessa góða kynbótagrips.