Jörfi 13011 verðlaunaður

Jónas, Guðbjörg og Guðmundur Jóhannesarbörn með viðurkenninguna fyrir Jörfa 13011. Smalahundurinn Tr…
Jónas, Guðbjörg og Guðmundur Jóhannesarbörn með viðurkenninguna fyrir Jörfa 13011. Smalahundurinn Tryggur taldi rétt að vera með á myndinni. Mynd: NBÍ/Íris

Í síðustu viku afhenti Sveinbjörn Eyjólfsson, forstöðumaður Nautastöðvarinnar, verðlaun fyrir besta nautið fætt 2013. Eins og kunnugt er hlaut Jörfi 13011 frá Jörfa í Borgarbyggð þessa nafnbót en afhending verðlaunanna hefur tafist vegna Covid-19 faraldursins. Það var því ekki fyrr en nú sem verðlaunin voru afhent þeim systkinum og ræktendum Jörfa, Jónasi, Guðbjörgu og Guðmundi Jóhannesarbörnum, viðurkenninguna. Segja má að tímasetningin hafi hins vegar verið með ágætum því kýrnar á Jörfa eru nýfluttar í nýtt legubásafjós sem börn Jónasar byggðu en þau hafa nú tekið við búrekstri á Jörfa. Sveinbjörn sagði við þetta tækifæri að Jörfi væri eitt þeirra fáu nauta sem næði þeim vinsældum meðal bænda að sæði úr honum kláraðist.

Það er í góðu samræmi við gæði Jörfa sem endurspeglast kannski hvað best í dómsorðum hans: Dætur Jörfa eru fremur mjólkurlagnar með há efnahlutföll í mjólk. Þetta eru meðalstórar og háfættar kýr, bolgrunnar, ekki útlögumiklar en yfirlína er bein. Malirnar eru fremur grannar, beinar og nokkuð flatar. Fótstaða er nokkuð bein og gleið. Júgurgerðin er frábær, geysimikil festa, áberandi júgurband og júgrin einstaklega vel borin. Spenar eru vel gerðir, hæfilegir að lengd og þykkt og mjög vel settir. Mjaltir þessara kúa eru í góðu meðallagi og gallar í mjöltum fátíðir. Skapið er um meðallag.

Þess má geta að Jörfi stendur nú hæstur allra nauta í kynbótamati fyrir júgur og endingu og er einn af alhæstu nautum í heildareinkunn. Jörfi var undan hinu mikla kynbótanauti Birting 05043 Gústu 643 Skurðsdóttur 02012. Gústa var fædd á Brúnastöðum í Flóa en keypt sem kvíga að Jörfa þar sem hún ól sinn fyrsta kálf. Jörfi á því ekki langt að sækja afbragðsgóða júgurgerð og byggingu en þess má geta að móðuramma hans, Þvara 500 á Brúnastöðum, fékk á sínum tíma 92 stig í útlitsdómi sem þá þótti einstakt.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og Nautastöð BÍ óska Jónasi, Guðbjörgu og Guðmundi innilega til hamingju og senda þeim sínar bestu kveðjur og þakkir fyrir ræktun Jörfa fyrir hönd íslenskra kúabænda.