Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum janúar

Hirðir frá Hrepphólum í Hrunamannahreppi
Hirðir frá Hrepphólum í Hrunamannahreppi

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum janúar hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til nokkru fyrir hádegi þann 12. febrúar, höfðu skýrslur borist frá 550 búum. Reiknuð meðalnyt 25.325,9 árskúa á þessum búum, var 6.234 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 46,1. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum er alls enginn nýgræðingur í efsta sæti þessa lista, hið sama og við höfum séð við mörg uppgjör undanfarið, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar mjólkaði 8.897 kg. síðustu 12 mánuðina. Annað búið í röðinni nú var einnig hið sama og síðustu mánuði, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalkýrin skilaði 8.405 kg. á tímabilinu. Þriðja búið á listanum var bú Gunnbjarnar ehf. í Skáldabúðum í hinum gamla Gnúpverjahreppi en þar reiknaðist meðalnyt árskúa 8.372 kg. Hið fjórða á listanum var bú Gautsstaða ehf. á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd þar sem meðalárskýrin skilaði 8.226 kg. Fimmta búið að þessu sinni var Hvanneyrarbúið ehf. en meðalnyt árskúnna þar var 8.218 kg. á tímabilinu.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Sjöa 777 (f. Roði 11051) á Kúskerpi í Blönduhlíð í Skagafirði sem mjólkaði 13.779 kg undanfarna 12 mánuði. Önnur í röðinni var Fura 1524 (f. Þvali 10008) á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði en nyt hennar var 13.734 kg á tímabilinu. Þriðja kýrin var Aþena 624 (f. Aðall 02039) í Laxárholti á Mýrum vestra sem mjólkaði 12.939 kg á síðustu 12 mánuðum.

Alls náðu 84 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir janúar hafði verið skilað frá skömmu fyrir hádegið þ. 12. febrúar, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 15 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og þar af tvær sem komust yfir 13.000 kg.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk