Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar í nýliðnum ágúst

Ægir frá Hlemmiskeiði 2 á Skeiðum, undan Tanna 15065 og Sæunni 1211.
Ægir frá Hlemmiskeiði 2 á Skeiðum, undan Tanna 15065 og Sæunni 1211.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn ágúst, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggjast á skilum eins og þau voru laust eftir hádegið þann 12. september.

Þegar áður nefndar niðurstöður voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 468 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 123 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 23.884,1 árskýr á búunum 468 reyndist 6.308 kg. eða 6.236 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 51,0.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var á búi Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi þar sem árskýrin mjólkaði að meðaltali 8.568 kg. síðustu 12 mánuðina. Annað í röðinni var bú Dalbæjar 1 ehf. í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi en þar var meðalnyt árskúnna 8.493 kg. á umræddu 12 mánaða tímabili. Þriðja reyndist vera bú Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem meðalárskýrin skilaði 8.474 kg. nyt á tímabilinu sem uppgjörið nær yfir. Fjórða í röðinni að þessu sinni var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, þar sem nyt hverrar árskýr reiknaðist 8.465 kg. að meðaltali. Í fimmta sæti var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit en þar mjólkaði árskýrin að meðaltali 8.458 kg. á tímabilinu.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Vænting 1271 (f. Hrókur 708, sonur Þryms 02042) í Skáldabúðum 2 í hinum forna eystri hreppi, Gnúpverjahreppi en hún mjólkaði 14.167 kg. á síðustu 12 mánuðum. Önnur í röðinni að þessu sinni var Hrafndís 1743 (f. Már 1478, sonur Sands 07014) í Garði í Eyjafjarðarsveit en hún mjólkaði 13.727 kg. á umræddu tímabili. Þriðja í röðinni var Hólmfríður 726 (f. Blómi 08017) í Hólmum í Austur-Landeyjum sem mjólkaði 13.595 kg. síðustu 12 mánuðina. Fjórða kýrin að þessu sinni var Birna 1450 (f. Bikar 16008) einnig í Skáldabúðum 2 en hún skilaði nyt upp á 13.241 kg. á uppgjörstímabilinu. Í fimmta sæti var kýr nr. 495 (f. Ottó 11058) á Núpi á Berufjarðarströnd sem mjólkaði alls 13.195 kg. á umræddu tímabili.

Alls náðu 139 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá eftir hádegi hinn 12. september, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 37 nyt yfir 12.000 kg. þennan tíma. Sex þeirra mjólkuðu meira en 13.000 kg. á umræddum tíma eins og þar af ein yfir 14.000 kg. eins og fyrr getur.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 28,8 en árskýrnar þar voru að jafnaði 25,5 við lok ágúst. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 6.599,9 kg.

Meðalfallþungi 9.934 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 250,7 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 747,0 dagar.

 

Sjá nánar:

https://www.rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2022