Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar í nýliðnum júlímánuði

Trölli frá Stakkhamri á Snæfellsnesi, undan kú nr. 775 og Hæl 14008.
Trölli frá Stakkhamri á Snæfellsnesi, undan kú nr. 775 og Hæl 14008.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar frá því í júlí, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggjast á skilum eins og þau voru laust eftir hádegið þann 11. ágúst.

Þegar áður nefndar niðurstöður voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 475 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 124 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 23.991,9 árskúa á búunum 475 reyndist 6.334 kg eða 6.332 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 50,5.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var á búi Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem nytin reyndist að jafnaði vera 8.603 kg. Í öðru sæti var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, þar sem nyt hverrar árskýr reiknaðist 8.562 kg. Þriðja var bú Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi þar sem meðalnyt árskúnna var 8.466 kg. á fyrrnefndu 12 mánaða tímabili. Fjórða að þessu sinni var bú Arnfríðar Jóhannsdóttur í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, þar sem meðalnyt árskúnna reyndist vera 8.449 kg. Fimmta búið við lok júlí var bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóahreppi þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.416 kg. á tímabilinu.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Vænting 1271 (f. Hrókur 708, sonur Þryms 02042) í Skáldabúðum 2 í hinum forna eystri hreppi, Gnúpverjahreppi en hún mjólkaði 13.918 kg. á síðustu 12 mánuðum. Önnur í röðinni að þessu sinni var Mía 536 (f. Ýmir 13051) á Búrfelli í Svarfaðardal sem mjólkaði á tímabilinu 13.370 kg. Þriðja varð Gláma 1335 (f. Blossi 1097, sonur Birtings 05043) sem skilaði 13.303 kg. á umræddu tímabili. Fjórða að þessu sinni var Heiða 575 (f. Blómi 496, sonur Laufáss 08002) sem mjólkaði 13.002 kg. síðustu 12 mánuðina. Fimmta kýrin nú var Hólmfríður 726 (f. Blómi 08017) en nyt hennar á tímabilinu var 12.889 kg.

Alls náðu 137 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum júlímánaðar hafði verið skilað frá nærri hádegi hinn 11. ágúst, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 33 kýr nyt yfir 12.000 kg. á umræddu tímabili. Fjórar þeirra mjólkuðu meira en 13.000 kg. á umræddum tíma eins og fram kemur hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 28,5 en árskýrnar þar voru að jafnaði 25,5 við lok júlí. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 6.513,7 kg.

Meðalfallþungi 9.911 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 251,4 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 747,2 dagar.

 

Sjá nánar:

https://www.rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2022