Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn maí

Kokkáll frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi, undan Hrauna 22030 og Bollu 945, Mynd frá Nautastöðinni á …
Kokkáll frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi, undan Hrauna 22030 og Bollu 945, Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar síðustu 12 mánuði, við lok maí, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar nokkuð var liðið á dag þann 11. júní. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en mun meiri upplýsingar er að finna í töflum þeim sem tengill er í neðst í fréttinni.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 422 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær nú til 116 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.

Reiknuð meðalnyt 23.792,2 árskúa á búunum 422 var 6.555 kg. eða 6.804 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 422 búum var 56,4.

Mest meðalnyt árskúa nú var, líkt og fyrir mánuði, á búi Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi, Rang. þar sem meðalárskýrin skilaði 8.696 kg. af mjólk að meðaltali á síðustu 12 mánuðum. Annað í röðinni að þessu sinni var bú Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.528 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja að þessu sinni var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.519 kg. á viðmiðunartímabilinu.

Nú er áður nefnd breyting á birtingu lista yfir hæstu 12 mánaða afurðir mjólkurkúa orðin að veruleika. Listinn sem birtist núna á að geyma hæstu 12 mánaða afurðir sem skráðar hafa verið það sem af er þessu ári, burtséð frá því við lok hvaða mánaðar innan yfirstandandi árs hver og ein kýr náði mestum 12 mánaða afurðum.

Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er árinu á Droplaug 875 (f. Dropi 10077) í Dalbæ í Flóa sem náði 15.164 kg. nyt við lok febrúar sl. Önnur í röðinni á þessum lista er Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum en hæsta 12 mánaða nyt hennar er 15.136 kg. og náðist við lok janúar sl. Þriðja kýrin á umræddum lista er Skerja 638 (f. Spennir 12027) í Kolsholtshelli í Flóa sem náði 15.066 kg. nyt eftir 12 mánuði þegar mars sl. var á enda.

Það sem af er þessu ári hafa 30 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hópi hafa sjö kýr skilað yfir 14.000 kg. mjólkur á 12 mánuðum og þrjár þeirra hafa komist yfir 15.000 kg. eins og þegar hefur komið fram.

Meðalfjöldi kúa á þeim 116 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 29,5 við lok maí en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 27,2 á þeim tíma. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.308,7 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.346 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,0 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 732,4 dagar.

Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum var mestur, var Reykir í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn varð 499 daga gamall og óx að meðaltali 655 g. á dag. Næst í röðinni var búið á Efstalandi í Öxnadal þar sem hver meðalgripur óx að jafnaði um 621 g. á 462 dögum. Þriðja búið á þessum lista núna við lok maí er Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem 602 daga gamlir gripir náðu að vaxa að meðaltali 588 g. á dag.

Þegar litið er á meðalfallþunga sláturgripa var hann mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem skrokkþungi 37 gripa varð að meðaltali 389,9 kg á 810 vaxtardögum. Næst í röðinni var Saurbær í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalfallþungi 16 gripa eftir 712 vaxtardaga reiknaðist 367,6 kg. Þriðja í röðinni nú varð Minni-Mástunga í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem skrokkþungi 10 gripa varð 364,8 kg. að meðaltali eftir 641 vaxtardag.

Aftur má minna á að það sem hér hefur verið rakið er aðeins lítið brot af því sem er að finna á þeim listum sem birtir eru.

Þess er vert að geta hér að endingu að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2025