Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum apríl

Vöttur frá Reykjahlíð á Skeiðum, undan Knetti 16006 og Vörslu 1254
Vöttur frá Reykjahlíð á Skeiðum, undan Knetti 16006 og Vörslu 1254

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn apríl, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggjast á skilum eins og þau voru um hádegisbilið þann 11. maí.

Þegar áður nefndar niðurstöður voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 475 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 123 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 23.941,7 árskúa á búunum 475 reiknaðist 6.349 kg eða 6.337 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 50,4.

Mest meðalnyt árskúa undanfarna 12 mánuði var á búi Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúnna var 8.824 kg. á tímabilinu. Í öðru sæti var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, þar sem nyt eftir hverja árskú reyndist vera 8.636 kg. Þriðja var bú Arnfríðar Jóhannsdóttur í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.493 kg. Fjórða búið nú í lok apríl var bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóahreppi þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.383 kg. á tímabilinu. Fimmta að þessu sinni var bú Páls Jóhannssonar í Núpstúni í Hrunamannahreppi þar sem meðalárskýrin mjólkaði á fyrrnefndu tímabili 8.258 kg.  

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Snúra 546 (f. Dúllari 07024) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi sem mjólkaði 14.979 kg. Önnur í röðinni var Stunga 386 (f. Kaktus 16003) í Skipholti 1 í Hrunamannahreppi sem mjólkaði 13.829 kg. á tímabilinu sem um ræðir. Þriðja reyndist Bára 523 (f. Sandur 07014) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 13.579 kg. Næst á eftir henni var kýr nr. 847 á Hlaðhamri við Hrútafjörð vestanverðan sem mjólkaði 13.095 kg. síðustu 12 mánuði. Fimmta kýrin var síðan Súellen 1121 (f. Kaktus 16003) á Kúskerpi í Blönduhlíð í Skagafirði sem skilaði undanfarna 12 mánuði 12.808 kg. mjólkur.

Alls náðu 102 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir apríl hafði verið skilað frá að morgni hins 11. apríl, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 22 yfir 12.000 kg. á tímabilinu og af þeim skiluðu fjórar meiri nyt en 13.000 kg. Ein þeirra mjólkaði tæp 15.000 kg. eins og fram hefur komið.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,4 en árskýrnar þar voru að jafnaði 25,9 við lok apríl. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 6.198,7 kg.

Meðalfallþungi 9.726 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 253,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 749,6 dagar.

 

Sjá nánar:

https://www.rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2022